Ég var búin að skrifa heillangt blogg sem var að hverfa %$&%$! En jæja þá ætla ég að gera aðra tilraun og koma með klassískt punktablogg
Jólahlaðborð Kaffibrennslunnar var svaka stuð, góður matur, samstarfsfólk Óla vel í því..hehe
Ég brilleraði á önninni, fékk mjög góðar einkannir, t.d. tvær 10:)
Ég eignaðist systur-dóttur mánudaginn 17. desember, Áróra systir og Sigþór eignuðust litla stelpu sem var á endanum tekin með keisara, sætasta stelpa sem ég hef séð!
Við Óli vorum með 2 kynningar fyrir Kaaber í Nettó rétt fyrir jól, hepnaðist vel, kynntum kaffi, konfekt, piparkökur og rommkúlur..hehe
Þorláksmessa var róleg, skreyttum jólatré og spiluðum hjá Jóra og Kötu fram á nótt.
Aðfangadagur var ekki eins rólegur.
keyrðum út pakka og jólakort hægri vinstri, borðuðum heima hjá mömmu og pabba. Áróra, Sigþór, litla dóttir þeirra, Sigga amma, Jói afi og Árni bróðir mömmu borðuðu líka þar svo við vorum alls 11 í kvöldmatnum. Mjög góður matur.
Engin mandla var til svo við settum hnetu í jólagrautinn, sem Sigþór fékk og í verðlaun var konfektkassi.
Fékk heilmikið af gjöfum, ég gaf Óla Síðan Skein Sól CD/DVD, bol úr Gallerí og 4 gb Ipod Nano, og hann gaf mér geggjað nærfatasett, Cintamani vesti og bleika verkfæratösku sem mig langaði svo í..heheh :) hún hefur komið sér vel ;)
Eftir pakkaopnunina fórum við í jólaboð til Möttu og Óla, ömmu og afa Óla, þar var mikið hlegið og strítt.. hehe..
Fórum svo aftur til Mömmu og pabba, en þar var annað jólaboð.
Sofnuðum frekar snemma, útkeyrð eftir daginn.. :)
Jóladagur var mjög afslappaður sváfum fram eftir öllu og kíktum svo í jólaboð til foreldra Óla, þar voru systkini hans komin saman, rosa gaman þar :) svo þegar við komum heim spiluðum við Monopoly fram á nótt :)
Það skiptist alveg á að vera mikið að gera og lítið, en á annan í jólum höfðum við sko alveg nóg að gera, fyrst fórum við í jólaboð til mömmu ættar, það var haldið í sal í sunnuhlíð. Þar voru allskonar veitingar en við fórum úr miðju boði þar því okkur var líka boðið í þrítugs afmæli hjá Heiðu, frænku Óla.. svo við héldum áfram að háma í okkur hjá henni. :) þegar við komum þaðan voru Áróra og Sigþór heima svo við fórum að spila Monopoly..hehe :)
27. og 28. des var ég að vinna og eins og svo oft áður spiluðum við Monopoly við Áróru og Sigþór 27. des, kíktum reyndar heim til þeirra í það skiptið. Það var rosa fínt..heheh.. þau orðin alveg sjúk í að spila þetta spil..
Laugardaginn 29. des hélt ég smá vinkonuboð um kvöldið. Gerði heitan brauðrétt og eitthvað gums..hehe.. og var með smákökur og heitt kakó og svona..voða kósý.. svo fórum við stelpurnar í bekkjar-hitting heima hjá Atla Páli, því Aron var staddur á landinu yfir jólin, en hann býr núna í Hollandi. Það var svaka stuð hjá Atla Páli og stefnan var tekin á Dátan um miðnætti.. Jonni drapst í rúminu hans Atla og ældi yfir allt greyjið, og eftir margar tilraunir til að koma Jonna heim til sín hringdi Atli á lögguna, og hún mætti á staðinn til að koma honum heim, var þá löggan ekki maðurinn sem jonni er að leigja hjá..alger snilld.. hehe.. en við hin héldum á Dátann, Kamilla fór reyndar heim..en þar var lítil stemning á Dátanum svo við héldum á Café Amor. Þar fórum við beint á dansgólfið og dönsuðum þangað til ljósin voru kveikt.. hehe.. þarna hittum við stelpurnar allskonar náunga..hehe.. misvinsæla :P ..dönsuðum trilltan dans við menn af öllum þjóðflokkum..hahah..:) ..skriðum svo heim að ganga 5 um morguninn :)
Gamlársdagurinn var mjög afslappaður..borðuðum hérna heima líka.. fengum rosa góðan fylltan kalkún í matinn.. namminamm.. Óli alveg hámaði í sig..hehe..;p .. Svo vorum við bara róleg heima, horfðum á skaupið og svona.. sem var ekkert spennandi fanst mér.. Við sprengdum upp hérna heima í rólegheitunum.. og um 1 leytið var stelpuhittingur hjá Tinnu. Við Óli sóttum Tinnu í annað áramótaboð og svo Elínu líka og fórum heim til Tinnu.. þar sullaði Tinna saman einhverjum drykkjum og bauð uppá osta og kex og svona.. hehe.. sátum heillengi og spjölluðum, en um 3 leytið ákváðum við að fara að koma okkur í Sjallan.. og það var nú meira ævintýrið.. Hrúga af 16 ára stelpum að reyna að troða sér inn alveg brjálaðar, ein traðkaði á mig og gaf mér risa sár á ristina :S .. en við komumst á endanum inn og byrjuðum að dansa eins og vitleysingar, inni var svo traðkað á hina ristina mína sem er alveg marin..hehe.. þvílíkt rugl á liðinu þarna... samt ekki eins margir og við bjöggumst við.. en jæja.. um 6 leytið hringdi ég svo í Óla sem kom og sótti mig, og við steinrotuðumst um leið og við komum heim. :)
Á nýjársdag vöknuðum við kl 5! án þess að hafa svo mikið sem rumskað fram að því.. held það hafi nú bara ekki komið fyrir mig síðan ég var ungabarn..hehe.. :) .. en þá fórum við í matarboð hjá foreldrum Óla..og hámuðum þar í okkur... "misstum af" brennunni en keyrðum heim í miðri flugeldasýningu svo við náðum einhverju af henni.. Þegar við komum heim horfðum við svo á Syndir feðranna, ég og mamma vorum báðar alveg með tárin í augunum..hrikaleg mynd :/ .. en þá komu Áróra og Sigþór og við spiluðum enn einusinni Monapoly, og í það skiptið rústaði ég því algerlega.. í lokinn átti ég allar eignirnar, nokkur hótel og fullt af húsum..hehe.. og yfir 200. þús kall.. hehe.. ekkert smá ánægð með mig.. ég fékk samt svo mikið samviskubit yfir því að hafa unnið að ég ætlaði aldrei að geta sofnað.. ég er ekki að grínast..haha.. hef sjaldan lent í öðru eins.. farin að lifa mig aðeins of mikið inn í leikinn..
En í kvöld og á morgun er ég að fara að vinna á Gallup aftur... skrýtið að mæta í vinnuna eftir svona langt frí..hehe.. en nú þarf maður að fara að skipuleggja sig aftur, fyrsti skóladagurinn 8. janúar og svona.. Svo fer að líða að afmælinu mínu.. :) 16. jan.. hehe.. spurning hvaða vitleysu maður gerir þá.. hehe :)
En ég held ég segi þetta gott í bili :) Gleðilegt nýtt ár - Kv. Sigga
02. janúar 2008 klukkan 16:19
Sigríður Ýr Unnarsdóttir 4 athugasemdir
Það hefur nú lítið gerst síðustu daga.. ég er búin að vera í jólafríi síðan 29. des.. þetter alveg svakalegt.. Síðasta föstudag var okkur Óla boðið í rauðvín og osta.. hehe.. til Steina vinar hans og Freyju, kærustu Steina.. það var nú ekki langt að fara þar sem þau búa hérna í götunni, 2 hús á milli :) svo við röltum þangað eftir að hafa horft á tekinn og stelpurnar..hehe.. má ekki sleppa því ;) ..þar voru þau með rautt og hvítt og koníak og vínber og osta og kex.. algjör veisla ;) ..þau eiga "lítinn" labrador hvolp sem er 4 mánaða. þvílík rúsína..hehe.. nú langar mig í hund! ..hehe.. svo greip Steini gítarinn og við sungum og sungum ..hehe.. vorum þarna langt fram á nótt.. þangað til Freyja var farin að dotta í sófanum og læddist inn í herbergi, þá ákvað ég að stinga af líka og fór heim að sofa en Óli og Steini ..og kassagítarinn skemmtu sér saman alveg fram á morgun..hehe..;)
..á laugardaginn kíkti ég í vinnuna og þegar ég kom heim voru systur mömmu mættar með sínar fjölskyldur og helling af laufabrauði.. þetta var í fyrsta skipti sem ég hef ekki skorið út eitt einasta laufabrauð.. hehe.. við Óli vorum ekki lengi að flýja niður í hreiðrið okkar ;) ..fengum okkur svo subway með öllu liðinu.. og höfðum það rólegt, ég lærði undir stærðfræðiprófið og svona..
Á sunnudeginum var okkur svo boðið í afmæli hjá Tinnu, frænku Óla... hún var 10 ára.. og við Óli höfðum ekki Hugmynd hvað 10 ára stelpu langar í í afmælisgjöf.. en kíktum í Hagkaup.. og þá kom sér vel að systir Óla vinnur þar og vissi að Tinna hafði beðið um eitthvað lítið tölvudýr. svo við keyptum það bara.. en þegar við komum stóðu Friðrik Ómar og Guðrún Gunnars við lítið borð...alein.. og nánast engin í Hagkaup.. þau voru að árita plötuna sína.. "ég skemmti mér um jólin".. og það vissi Engin af því greinilega.. hún hóaði í systir Óla og spurði hana hvenær lokaði eginlega.. hehe.. þetta var hálf vandræðalegt.. svo við Óli ákváðum að leyfa þeim að árita einn disk handa okkur.. við eigum enga jóladiska.. heh.. og það lifnaði alveg yfir þeim..hehe.. loksins einhver að kaupa plötuna..:) ..en svo fórum við í afmælið og hún varð alveg himinlifandi yfir gjöfinni okkar.. hehe..fengum alveg rosa góðan mat í veislunni..hehe ;) ..en stoppuðum stutt því ég þurfti að læra undir stærðfræðiprófið.. ég ætlaði sko ekki að falla í þessari stærðfræði.. :P .. Um kvöldið komu svo Áróra bumbulína og Sigþór í mat.. hún orðin alveg hnöttótt greyjið :)...
Mánudagurinn var ekkert spes.. ég klúðraði málunum í stærðfræðiprófinu.. en svosem ekki svo slæmt að ég geti ekki náð.. held ég.. eða.. Vona ég.. ég tek áfangan Ekki aftur..hehe..frekar hætti ég í skóla heldur en að endurtaka þetta.. en neinei.. ég næ þessu.. svo var ég bara að vinna.. Þriðjudagurinn var afslöppunnardagur.. kíkti út í húsasmiðju til að kaupa málningarrúllu og pensil, ætlaði aðeins að fara að mála hérna heima.. en helduru að strákurinn hafi ekki selt mér vitlausa rúllu svo ég þurfti að fara aftur og fá rétta.. hehe.. svo eldaði ég hádegismat handa Óla mínum, en ég er að reyna að fá hann til að koma heim til mín í mat í hádeginu sínu því ég hef Ekkert að gera á morgnana annað en að elda handa okkur mat.. hehe..:) svo málaði ég hilluna mína.. og það kom bara svona rosalega vel út.. ;) .. ég er að gera allt hvítt sem ég á.. einhver árátta.. en hillan kom út eins og hún væri svona 100 ára ..hehe..antík..mjög flott bara þótt ég segi sjálf frá.. hehe ;) svo er ég bæði í gær og í dag búin að vera að gera gjöf til þess að gefa barninu hennar Áróru á fæðingardeildinni.. sauma og sauma..hehe.. ;) ekkert smá myndarleg..;) ég er reyndar búin að gera svo mikið af efnum fyrir ýmislegt handa barninu að ég gæti auðveldlega fyllt íbúðina þeirra..hehe.. en ég verð að hemja mig.. geyma eitthvað af þessu fyrir mín börn..:)
En já.. þetter svona það helsta sem hefur verið að gerast.. hehe.. svo er bara jólahlaðborð hjá Kaffibrennslunni á föstudagskvöldið.. verður vonandi jafn skemmtilegt og í fyrra.. hehe.. þó margir hafi tilkynnt að þeir komist ekki :/ en það verður að koma í ljós.. Svo er næsta próf á mánudaginn svo ég held ég hafi alveg nóg að gera næstu daga ;)
06. desember 2007 klukkan 11:15
Sigríður Ýr Unnarsdóttir Engin athugasemd
Jæja þá er nóvember að verða búinn.. búið að vera fínn mánuður.. hehe..:) Ég man ekkert hvað er búið að gerast.. jú.. við óli tókum sunnudagsrúnt til reykjavíkur 18. nóv.. lögðum af stað til Rvk. ég fór í IKEA.. svo að borða.. og heim aftur.. stoppuðum í 4 tíma.. og keyrðum í samtals 9.. fyrir mig var þetta ekki alveg þess virði.. en Óli fékk að hitta Björgvin svo hann var mjög sáttur við ferðina..:) ..hehe.. en já svo man ég ekki meir.. jú við Óli fórum á jólatónleika í höllinni á síðasta fimmtudag.. og fórum svo í leikhús á Ökutíma á laugardaginn.. Mamma og pabbi kíktu til Noregs um helgina svo við Óli sáum um allt heimilið á meðan. Elduðum ekki staka máltíð hehe.. dominos á fimmtudag, vorum að vinna fram á kvöld á föstudag.. á laugardag fórum við á Kura Siam, nýja staðinn og á sunnudaginn pöntuðum við Nings.. og maður veltir því fyrir sér hvaðan þessi aukakíló koma..hehehe..
En ég verð að segja aðeins frá Kura Siam.. ég hef sjaldan lent í öðru eins á veitingastað.. en jæja.. staðurinn lítur vel út og matseðillinn svosem ágætur, ég pantaði mér vorrúllur og Óli fékk sér lambakjöt í ostrusósu.. svo fengum við auðvitað djúpsteiktar rækjur í súrsætri og hrísgrjón og svona.. maturinn leit vel út og var rosa góður.. svo þegar Óli var búin að háma í sig af réttinum sínum fattaði hann að bragðið var ekki alveg eins og það átti að vera.. og leyfði mér að smakka.. þá hafði hann fengið karrýrétt en ekki ostru.. og hann bara varð að hóa í eigandan, sem var að afgreiða okkur.. og spurði kallinn hvað hann væri að borða.. Eigandinn sagði að þetta væri karrý og Óli sagði honum að hann hafi pantað ostru, en tók það alveg fram að þetta væri mjög gott, bara ekki það sem hann pantaði. hehe.. ég var alveg komin í kleinu þarna, þetta var eitthvað svo vandræðalegt.. en þjónustustelpan kom og var eitthvað voða vesen.. svo heyrðum við eigandan fara inní eldhús og skamma þá sem voru að elda.. og svo kemur hann aftur og spyr hvort við viljum eitthvað að drekka, en við vorum nýbúin að fá vatn svo óli spurði hvort þeir væru með eftirrétti því við höfðum heyrt mann panta ís. Hann sagðist eiga ís þótt það væri ekki beint til sölu, átti eftir að gera eftirréttamatseðil, en hann ákvað að redda þessu fyrir okkur.. svo stuttu seinna kemur hann með tvær ísskálar og afsakar vesenið með matin hans Óla.. ég auðvitað háma í mig ísinn og var næstum búinn að æla, þá var einhver sósa yfir öllum ísnum, svört sósa.. þetta var ekki lakkríssósa.. ekki súkkulaði og ekki karamella.. þetta var mesti viðbjóður sem ég hef smakkað.. og óli varð ekkert smá skrýtinn í framan.. Þá höfðu þeir sett matarlit eða einhvern sósulit út á ísinn okkar.. þetta var þvílíkt ógeð en okkur langaði svo í ís svo við reyndum að sleppa því að borða þessa sósu.. það gekk ekki vel svo við bara ákváðum að kíkja á kaffihús og fá okkur eitthvað almennilegt í eftirrétt. Svo fórum við að afrgreiðsluborðinu til að borga reikningin, ákváðum að láta ekkert vita af þessari einkennilegu íssósu því við nenntum ekki að standa í meira veseni, vorum alveg að springa úr hlátri yfir þessari vitleysu.. en þá hvíslar eigandin því að okkur að við þyftum sko ekkert að borga fyrir ísin, hann væri í boði hússins út af mistökunum með matinn, var ekkert smá ánægður með sig, fanst hann vera að gera þvílíkt góðverk..hehe Eins og það væri einhver séns á því að við myndum borga fyrir þetta ógeð..hahah.. Eftirá fór ég að spá hvort kokkarnir hefðu verið að hefna sín á okkur fyrir að hafa kvartað yfir matnum.. hehe.. ég veit það ekki.. hann bauð okkur svo hjartanlega velkomin þangað aftur, en ég held ég egi ekki eftir að taka því boði..hehe allaveganna ekki á meðan Nings er hérna líka.. hehe.. en það er örugglega fínt að panta með sér mat og taka með þarna á Kura Siam.. heheh..
En þá er sagan búin.. hehe.. nú er ég bara að fara að undirbúa mig fyrir prófin.. ég er búin með minn síðasta skóladag..á bara eftir að mæta í stæ próf á mánudaginn og svo er enska 10. des og myndlistarsaga 13. des.. ég ætla rétt að vona að ég nái þessu öllu..hehe.. bæði MYS og STÆ eru 70% próf..algjört rugl.. En fyrst skólinn er búinn þá tekur við jólaföndur og bakstur og hitt og þetta.. við Óli erum búin að kaupa okkur eitthvað af jólaskrauti og seríum og ætlum að fá okkur jólatré í stofuna okkar.. :) ég ætla sko að fá mér alvöru tré en Óli vill eitthvað plastdrasl.. pff.. endar með að við kaupum okkur sitt hvort tréð..hehe..:)
Svo á Áróra systir að eiga eftir 4 daga..á alþjóðadegi fatlaðra.. haha.. við erum að vona að hún fæði núna um helgina til þess að drífa þetta af.. Verður lítið jólakríli..það er engin smá spenningur í liðinu.. Ég að verða móðursystir! djöfull er maður að verða gamall.. hehe.. ég er búin að vera á fullu að búa til hitt og þetta handa barninu, svolítið erfitt að vita ekki kynið, það er ekkert gaman að gefa því allt hlutlaust.. en jæja.. ég held ég segi þetta gott í bili.. nú verður styttra í næsta skrif þar sem ég hef lítið sem ekkert að gera næsta mánuðinn.. hehe..:)
29. nóvember 2007 klukkan 13:00
Sigríður Ýr Unnarsdóttir 2 athugasemdir
Hæhæ.. þá er komið að þriðja blogginu núna.. er alveg vikulega í þessu.. jæja.. það varð út reykjavíkurferð á endanum síðustu helgi. Gistum hjá Heiðu frænku Óla og Benna manninum hennar. Það var rosa stuð. Á laugardeginum fengum við að taka Björgvin og fórum með hann í heimsókn til Heiðu sem var alveg himinlifandi að fá að sjá hann.. hehe ;) en svo prófuðum við að borða á Friday's ..það var alveg geggjað! fékk mér quesadilla sem var alveg ótrúlega gott.. og riiisa ís í eftirmat..:) ..á Sunnudeginum fórum við Óli svo í sund í grafarvogslaug.. eitthvað sem við höfum aldrei gert saman þegar við kíkjum í bæinn.. en það var ekkert smá gott.. vorum komin uppúr um 12 og tókum þá rúnt í IKEA þar sem við keyptum aðeins í búið.. svaka stuð á okkur að versla diska og glös og hnífapör og þetta nauðsynlega :) .. svo var auðvitað kíkt aðeins í Kringluna þar sem ég eyddi helling af pening í ekkert.. frekar leiðinlegt þegar maður lendir í því.. hehe..:) jújú ég keypti mér linsur og málingardót og stígvééél og eitthvað og gaf Óla alveg geggjaðan jakka ..góð ég :) .. svo var bara brunað heim með smá stoppi í millitíðinni á KFC..yuuumm..:p ég er orðinn alger sælkeri ét bara það sem ég vil, verð að fara að hemja mig ef ég ætla ekki að láta þetta enda með ósköpum :/
En vikan er búin að líða alveg ótrúlega fljótt.. áður en maður veit af er komin föstudagur.. en það er nú ekkert búið að gerast svosem.. Kíkti í heimsókn til Áróru systir og Sigþórs í nýju íbúðina. Hún áróra er komin alveg 8 mánuði á leið svo það styttist í að maður verði móðursystir :D..
Gærdagurinn var reyndar mjög góður.. rúntaði nánas Allan daginn með kamillu.. og svo Elínu.. hehe.. Byrjaði á því að kíkja upp í Heiði til kamillu með Áróru.. svo fórum við þrjár á Nings og fengum okkur að borða saman. Þegar við svo löbbuðum út í bíl eftir matinn komumst við að því.. mér til mikillar skelfingar að ég gleymdi þessari djööö... bílastæðaklukku svo mín var komin með sekt. Það var þá ekkert annað í stöðunni en að drífa sig að borga þennan miða en þegar við vorum kominn niður í bæ lentum við í svolitlu ævintýri :) þar sáum við þar gamlan blindan mann með blindrahund. Maðurinn átti greinilega í vandræðum svo hann kallaði eitthvað og ég fór til hans. Þá var hann nýbúin að fá þennan hund sem rataði ekki heim til sín. Þessi maður er breskur og er búin að búa eitthvað hér á Íslandi svo hann gat nú reddað sér á Íslenskunni.. Mér fanst alveg sjálfsagt að fylgja manninum heim til sín, það var nú ekki svo langt í burtu og við kamilla lögðum af stað með mannin sem studdist við olnbogan minn. Ég fékk algjört samviskubit því ég fattaði ekkert að láta hann vita af kantsteinum og öðru sem hann rak lappirnar í.. en það var ekki lítið starað á okkur á meðan við fylgdum honum :s En þegar við vorum komin utan við húsið hans, svona korteri seinna, sýnir maðurinn okkur brunagat á jakka sem hann var með í fanginu allan tíman og biður okkur að koma með sér inn í kjallara til að athuga hvort við finnum einhverja brunalykt og sjáum eitthvað fleira brunnið. Þá fór þetta nú að verða eitthvað skrítið en við ákváðum að elta hann bak við hús og inn einhverja litla hurð sem var niður í kjallaran hans. Við fórum á eftir honum og sögðum að það væri allt eðlilegt þarna og ekki að sjá að neitt annað hafi brunnið. Þá biður hann okkur að koma með sér upp í íbúðina á hæðina fyrir ofan, upp pínulítin stiga og þá fór sko hjartað í okkur kamillu að slá aðeins hraðar. Greyjið blindi maðurinn var alveg ofboðslega huggulegur og kurteis en þetta var bara svo skrítið eitthvað hvað hann var að biðja okkur að gera að við sögðum honum af við værum að verða of seinar í bankann, sem var alveg satt, og kvöddum hann þar. Við fengum nú hálfgert samviskubit í bakaleiðinni fyrir að hafa ekki hjálpað manninum meira en vorum samt með pínu kjánafiðring í maganum. Kanski maður hafi séð of mikið af bíómyndum eða hvað það var þá var eittvað svo sérstakt að hann var að biðja okkur, sem hann þekkir ekki neitt, um að sniglast um í allri íbúðini hans og kíkja í alla króka og kima til að athuga hvort eitthvað væri brunnið.
En við vorum samt frekar ánægðar með okkur að hafa hjálpað manninum heim til sín því það var alveg greinilegt að það voru nú ekki margir sem hefðu gert það þarna.
Jájá.. en dagurinn hélt áfram og við Kamilla tókum aftur rúnt og sóttum Elínu stuttu eftir þetta.. um 5 leytið fór ég svo með honum Óla í heimsókn til ömmu og afa. Þau ætluðu að lána okkur spólu með honum Gísla á Uppsölum sem við ætluðum að kíkja á.. hehe..spennandi..:) Við spjölluðum heillengi við ömmu og afa og fórum svo bara heim að horfa á sjónvarpið.. eftir það sofnuðum við bara ansi snemma.
Í morgun vaknaði ég sneeemma og fór í vinnuna. Það var ágætt, vaktin alveg ótrúlega fljót að líða og fólkið bara ansi hresst þótt maður hafi nú lent í því að vera beðin um að fara til andskotans líka.. hehe.. en það er svona.. Gallup er ekki alveg jafn vinsælt hjá öllum, þótt allir ættu nú að geta sagt bara Nei takk í staðin fyrir að drulla yfir mann.. en maður tekur því samt ekkert persónulega.. hehe.. Jæja eftir vinnu fórum við Óli í afmælisgjafa-búðarrölt. Afi Óla og pabbi minn eiga báðir afmæli á morgun.. annar er 82 og hinn er 46..spurning hvor er hvað..:) en við fundum bara gjöf handa honum Óla eldri, afa Óla :) .. svo tókum við bara nokkra hringi í bænum, sáum til dæmis bíl rétt við hringtorgið hjá Bónus með 3 dekk undir bílnum.. annað framdekkið hafði brotnað undan bílnum og flogið eftir hálfu hringtorginu og lent beint á hliðinni á jeppa sem var rétt hjá Bónusvideo.. Alveg slatta löng leið og öll festingin á bínum sem dekkið var á var í Henglum.. svolítið sérstakt :s.. En svo vorum við bara að koma heim og núna erum við bara að bíða eftir matnum og ætlum svo að finna okkur eitthvað sniðugt að gera í kvöld..vona að það gangi upp :) Planið er að hafa eitthvað stelpudjamm eða eitthvað í þeim dúr, verst að það er ekkert um að vera.. en við finnum eitthvað :) Annars segi ég þetta bara gott í bili :)
27. október 2007 klukkan 17:28
Sigríður Ýr Unnarsdóttir 5 athugasemdir
Jæja þá er vika liðin frá síðustu skrifum.. þetta er ágætt hjá mér.. allt að koma.. en síðasta helgi var mjög fín.. byrjaði á potta"partýinu" sem átti til að byrja með að vera bara tveggja manna.. hehe.. en endaði fjögurra því Gummi kom með Kamillu og þegar Óli var búin að vinna kom hann líka.. mjög fjörugar umræður um lífið og tilveruna.. vorum alveg heillengi að rökræða í pottinum langt fram á nótt..:)
En á laugardaginn byrjaði sko ballið því við Óli vöknuðum snemma og byrjuðum að undirbúa básinn okkar á Matur-inn sýninguni í VMA... þetta var alveg svakalegt stuð, hellingur af fólki ..misfreku skulum við segja.. hehe..það er alltaf ákveðin hópur sem flakkar á milli svona "smakk"-a og étur eins og það hafi verið lokað matarlaust inní skáp í viku.. en það er lítið hægt að gera í því.. þetta gekk alveg rosalega vel.. og um kvöldið þá höfðum við það bara kósý hérna heima.. Sunnudagurinn var eins.. byrjaði á sýningunni og eftir það fórum við út að borða á Greifann.. það var voðalega kósý líka.. :) ..en síðasta vika hefur verið álíka óspennandi og vikurnar fyrir... gerist alveg afskaplega lítið.. en við kíktum á Bjögga og Hafrúnu á mánudagskvöldið.. það var svaka stuð..svo man ég ekkert hvað við gerðum á þriðjudaginn en ég var að vinna á miðvikudaginn..það var svosem fínt.. En í gær var konukvöld í VMA.. sem er svosem ekki frásögum færandi.. hehe.. nema fyrir það hvað þetta var afskaplega óspennandi og mig langaði helst að heimta endurgreiðslu.. Í boði var sprite og útrunnir Makintosh molar.. og skemmtiatriðin snérust nánast bara um einkahúmor hjá nemendaráði sem fáir skildu.. fojj.. reyndar eru strákarnir í Luxor ekkert ómyndarlegir.. en það var líklegast eini plúsin við þetta, nema auðvitað Kamilla og Elín sem gerðu þetta alveg vel bærilegt :) En í dag er bara leiðinda skóladæmi eitthvað.. verkefnaskil og svona.. svo er ég að bíða eftir því að Óli segi mér hvort ég sé að fara suður á eftir eða ekki.. það er eitthvað voða vesen að finna það út og erum að bíða eftir svari ..ég er sko ekki ein af þeim sem getur bara sest upp í bíl og keyrt af stað.. ég þarf að plana vel hvað ég ætla að taka með mér og svoleiðis.. hehe.. en annars held ég að maður hafi það bara rólegt hérna á akureyri ef við förum ekki suður.. Verst að það er ekkert að gerast hér í bænum.. en maður getur nú samt yfirleitt fundið sér eitthvað að gera í góðra vina hópi.. hehe :)
Jæja þá er mestallt komið sem ég hef að segja í bili.. svona um það sem hefur á daga mína drifið.. úhh.. hehe..
en mér finst alveg voða gaman að sjá hverjir líta við hjá mér (þótt það fari alveg rosalega í mig að lesa blogg sem snúast bara um það að fólk egi að kvitta fyrir sig..) ..bara svona aðeins að minna á að það er möguleiki.. :)
19. október 2007 klukkan 13:27
Sigríður Ýr Unnarsdóttir 5 athugasemdir
Jæja það er næstum hálft ár síðan ég bloggaði hér síðast og það hefur sko margt gerst á þeim tíma, ég segi alltaf að nú sé ég að farað skrifa hér reglulega en svo líður alltaf lengra og lengra á milli blogga.. en nú verð ég ekki á eins miklu flakki og ég var í sumar svo ég ætti að geta haft þetta aðeins reglulegar.
En við Óli fórum til Tyrklands í 2 vikna ferð sem var alveg Geggjað! Kíktum líka yfir til Grikklands og svona.. var alveg meiriháttar ferð og ég þarf að farað gera mér myndasíðu fyrir allar myndirnar þaðan :) Svo þegar við komum aftur til landsins þræddum við nánast allar bæjarhátíðir á landinu.. hehe.. eða svona.. fórum á Humarhátíð á Höfn, Húnahátíð á Blönduósi, einhverja skrýtna hátíð á Húsavík, og Akureyrarvöku.. svo um versló vorum við bara hér á akureyri.. Í lok ágúst fórum við Óli í sumarbústað í Flókalundi á vestfjörðum í viku.. þar þræddum við alla vestfirðina og kíktum í hvert einasta krummaskuð :) ..Svo núna er skólin byrjaður og ég er komin í nýja vinnu hjá Capacent Gallup.. svo það er eins gott að fólk fari að svara mér þegar ég hringi.. Ég er reyndar komin með alveg svakalegan skólaleiða, er að verða vitlaus á þessu, og ekki hjálpar að vera með öllum þessum furðufuglum sem eru á listnámsbraut í langflestum tímum.. En við erum samt nokkrar svona temmilega "venjulegar" þarna svo þetta er nú ekki alslæmt.. En ég veit svosem ekki hvað ég get sagt fleira í bili.. nú er löng helgi í skólanum og ég að bíða eftir að klukkan verði 11, er að fara í litun og svo beint í plokkun og litun eftir það.. hehe.. óli klippti á mér hárið svona snilldarlega í gær svo ég ákvað að pína hann ekki enn meira og fara á stofu í litun.. hehe.. svo er það bara pottapartý hérna í garðinum í kvöld.. Kamilla vinkona á enn eftir að prófa pottinn minn svo ég varð auðvitað að bjóða henni í tveggja manna partý.. :D ..en yfir helgina verðum við Óli að vinna á Matarsýningunni í VMA.. Kaffibrennslan verður með bás þar svo við verðum í alveg svaka stuði að gefa smakk og selja kaffi.. spurning hvað verður gert fleira, erum búin að vera að standa í smá flutningum, vorum að færa okkur um herbergi hérna niðri og taka yfir allan kjallaran, fyrst Áróra systir og Sigþór voru að flytja út með litla bumbubúan sinn. Þannig að núna erum við Óli tvö eftir með alla hæðina útaf fyrir okkur í Míní íbúðinni okkar, sem er nú samt alveg svona 40 fm.. hehe :) svo nú er um að gera fyrir fólk að kíkja til okkar í heimsókn :)
En ég held ég segi þetta gott í bil :) og nú verður ekki eins langt í næstu skrif.. hehe
12. október 2007 klukkan 10:06
Sigríður Ýr Unnarsdóttir 7 athugasemdir
Jæja þá er að koma að því.. við erum að tala um það að mín er komin í sumarfrí at last.. Á miðvikudaginn förum við suður og á föstudaginn er flogið út.. Þessi ferð á eftir að verða algjört bíó held ég.. Óli í fyrsta skipti í útlöndum allur brunnin í sandölum og hvítum sokkum, með derhúfu og mittistösku.. held það sé ekki spurning að kaupa sér videocameru í fríhöfninni :D það á lítið eftir að heyrast fra honum annað en: æ kom from æsland end æ vont bír plís ..menjú plís ..is it taxfríí? ...há möts? ..is ðer a núdbíts aránd? Hhahahahaha! rosalega er ég að sjá þetta fyrir mér :)
En já.. fram að ferðinni hef ég reyndar eitthvað minna að gera..fyrst ég er ekkert að vinna, en ég er allavega bún að panta mér neglur í dag og plokkun og litun á miðvikudagsmorgun, svo það er bara klipping eftir :) (ég í neglur.. haha..thats a first!)
En er búin að vera að vinna og vinna en samt fundið mér tíma til að bralla ýmislegt skemmtilegt.. fórum í Sjallan á laugardagin á Todmobil.. já ég veit..örugglega með foreldrum flestra á okkar aldri.. en ég fékk Óla með mér ..og meiraðsegja Jóra.. en hann hristi fljótlega hausinn og labbaði út..hehe :) Þau eiga samt svo góð lög, bara ekki alveg fyrir dansiball kanski..
Svo kíktum við Óli á Jóra og Kötu (og litla stubb auðvitað) í gær þegar ég var búin að vinna..(síííííðustu vaktina á kaffistofunni..) Ekkert smá sem að lítil börn geta verið krúttleg.. í fyrsta skipti sem ég sá stubbinn vakandi og hann er mánaðargamall í dag.. þetter svo fljótt að líða..
Ég hef nú annars eitthvað voða lítið að segja, er bara að pakka og hafa það næs.. Þarf reyndar að farað hitta þessar blessuðu vinkonur mínar.. (takið það til sín sem við eiga) heheh..Kamilla flutt úr bænum og Tinna að flytja til Spánar í byrjun Júlí.. þetta er alveg með ólíkindum.. :Þ reyndar flutti kamilla bara hinumegin í fjörðin.. en samt! Spánn er langt í burtu.. já mér líst vel á gott vinkonudjamm..einhverja helgina alveg fram að miðnætt..haha.. (verð á næturvöktum um helgar í sumar :/)
En já nú ætla ég að segja þetta gott í bili, kanski finnur maður eitthvað netkaffihús þarna úti svo maður geti látið heyra í sér eitthvað :)
21. maí 2007 klukkan 10:54
Sigríður Ýr Unnarsdóttir 4 athugasemdir
Nú líður að kostningum.. ætli XB verði ekki fyrir valinu, en aðeins fyrir snilldina að senda mér ónýtan yfirstrikunarpenna í pósti.. og systir minni gleraugnaklút.. hugmyndaflugið hjá þeim.. (haha.. ég fattaði þetta núna þegar ég las þetta yfir, en samt kjánalegt :/ )
En loksins fékk ég eina fríhelgi. Átti reyndar að vera að vinna allar helgar í þessum mánuði en ég náði að redda mér fríi :) á föstudaginn..ehh. ég man reyndar ekkert hvað ég gerði á föstudaginn... eða jú.. við Óli kíktum eitthvað í bæinn og rúntuðum um.. og hittum Steina á rúntinum..honum var óglatt því hann var svo einmana sagði hann, því Freyjan hans var að dimitera.. við ákváðum að taka það mál í okkar hendur og fórum með honum að borða..það var gott.. entist reyndar ekki lengi því hann þurfti að drífa sig í ríkið.. jæja..svo heyrðum við í Bjögga og enduðum öll þrjú hjá honum og Hafrúnu. Hún var reyndar að fara í vinnuna á laugardeginum svo hún var bara róleg.. :) Við fjögur, semsagt ég og strákarnir þrír fórum saman í bæinn og skelltum okkur á Kaffi Ak.. svolítið skrítið að vera ein með þessum strákum, en þeir eru allir svo frábærir svo þetta var alveg geggjað kvöld..:) Á laugardeginum skriðum við svo frammúr um hádegi.. og fórum svo í sund með Bjögga.. hehe..svo bauð hann okkur í mat um kvöldið.. og við skelltum okkur til hans um sjöleytið.. þar fengum við alveg rosagóðan kjúklingarétt sem Bjöggi töfraði fram :P ..svo höfðum við víst lofað Hafrúnu að taka hana með á djammið um kvöldið, því hún þurfti að sofa snemma á föstudagskvöldinu.. svo við Þuuurftum að fara aftur út.. heheh :D en áður en við komumst út fylltist húsið af einhverju fólki..sem ég vissi nú eitthvað minna af hver voru, en við enduðum samt öll saman á Kaffi Ak um kvödið.. það var voða fínt, Hafrún, sem er snyrtifræðingur puntaði mig inná baði, og þar rákumst við á útlitsfræðing.. eða hvað það heitir.. svo nú hefur maður sambönd.. heheh :) Svo vorum við alveg rosa dugleg, ég og Óli.. því eftir lokun nenntum við svoo ekki að bíða eftir taxa.. svo við bara röltuðum heim.. og það tók ekki nema hálftíma.. og var alveg frekar hressandi..svolítið kalt samt.. en við höfðum bara gott af því..
Annars er bara gott að frétta af okkur..verð að vinna eins og skepna þangaðtil ég fer út og svo byrjar vitleysan aftur um leið og ég kem aftur heim.. pff..
09. maí 2007 klukkan 09:52
Sigríður Ýr Unnarsdóttir 3 athugasemdir
jæja, þá er búið að vera alveg meira en nóg að gera hjá mér. Var að vinna alla síðustu helgi, föstudag, laugardag og sunnudag..og missti af öllu góða veðrinu.. mín alveg að verða vitlaus að hanga inni í 10 tíma á dag á meðan allir voru úti í sólbaði og sundi og bara name it.. en jæja, lítið hægt að gera í því úr þessu.. hehh.. svo 1 maí var ég líka að vinna..þá var líka gott veður.. en ég byrjaði ekki fyrr en 4 svo við Óli tókum dagin snemma og kíktum útí Kjarnaskóg og tókum smá rúnt í sveitinni og fengum okkur svo brynjuís :D
Svo er ég bara búin að vera að læra eins og dýr.. fátt annað komist að hjá mér, en skiladagur á Listabraut var í dag, milli 10 og 12.. og ég auðvitað var að rembast við að klára og stökk uppí skóla alveg rétt fyrir 12.. hehe.. ég alltaf á síðustu stundu.. en þetta er samt búið að vera gaman, sérstaklega í hönnunaráfanganum sem ég er í.. en ég fékk að velja mér einhvern hlut til að breyta og ég valdi mér gúmmískó og regnhlíf. hehe.. svo bjó ég til mynstur og setti á svo þetta er svona sett.. hehe :) og þessir hlutir allir fara svo á hönnunarsýningu í Laugardalshöll í haust.. það verður nú eitthvað skrautlegt held ég, við í áfanganum erum búin að gera ýmislegt, alveg frá glasamottum upp í 2 metra gosbrunn. Ég er samt frekar fegin að vera búin með þetta og nú er ekki annað en að bíða eftir þessum prófum sem eru eftir, slapp reyndar með bara 3 próf á þessari önn og ég tók fjarnámspróf í ensku í gær, gekk bara ágætlega.. en nú eru bara stærðfræði og dönskuprófið eftir :)
Svo er ég búin að ákveða það að hafa þessa helgi alveg frábæra. Ég veit ekki ennþá hvað ég gæti brallað en það er eins gott að hún verði góð því ég verð svo að vinna næstu 2 helgar... og svo er bara útlönd.. þetta styttist.. 3 vikur til stefnu.. Svo þurfti Óli endilega að búa til "leik" sem snýst um það að við megum ekkert minnast á ferðina.. og á fyrsta deginum sagði ég það tvisvar.. svo ég er að tapa.. en ég tala bara um ferðina hér því Óli veit ekkert af því.. hehe :)
En ég er næstum því komin með fullt starf í sumar.. ég verð frá 8 til 12 á elliheimilinu Hlíð.. og svo aðra hverja helgi á næturvöktum á dvalarheimilinu í Kjarnarlundi.. ..svo ég verð semsagt að vinna hjá gamlingjunum þegar flestir aðrir verða á djamminu.. jibbí-kóla! þau hljóta að vera til í smá djamm annaðhvert laugardagskvöld..hafa bara gott af smá tjútti.. svaka stuð það.. nú er bara að redda sér enn einni vinnuni frá svona 1 til 5 eða 6 á daginn..pheww.. þetta er vesen :/
04. maí 2007 klukkan 13:50
Sigríður Ýr Unnarsdóttir Engin athugasemd
Grillveisla og spilakvöld hjá mér, Óla, Áróru og Sigþóri
Kjötið brann..
en kartöflurnar voru góðar..
Partý hjá Ásdísi og Jóni um kvöldið
ég þekkti fáa..
en lærði að stokka..
þakka Elínu fyrir það..
Við Óli krúsuðum um bæinn langt fram á nótt..
grilluðum okkur svo samlokur í "nætursnarl"
Sunnudagurinn..
Skelltum okkur í sund - gott veður
fékk frekknur :/
Fermingarveisla hjá frænda Óla..
nánast allir í svörtu, en mín mætti í hvítum kjól
talandi um að skera sig úr.. :/
Mánudagurinn..
er að fara í starfsviðtal kl 10:30
á elliheimili..
er það málið í sumar?
Þarf svo að manna mig upp í að fara með fullan sparibauk í banka og láta skipta klinki
spurning um að plata litlu systur með baukinn
en hirða peningin auðvitað sjálf..
verð svo að vinna frá 16-21..
Svo er á næsta leyti 11 mánaða afmæli okkar Óla, sem verður á miðvikudaginn..hehe.. ég held að það verði frekar haldið uppá að það sé mánuður í Tyrkland frekar en 11 mánuðir saman.. Þessi mánuður verður samt örugglega endalaust að líða hjá mér þar sem ég verð bara í prófum og leiðindum.. en það verður að hafa það.. tímin er búinn að vera svo fljótur að líða að maður verður komin út áður en maður veit af.. (lítið hugsað um annað þessa dagana en utanlandsferðina okkar)
Jæja þetta er orðið gott í bili.. :)
23. apríl 2007 klukkan 09:34
Sigríður Ýr Unnarsdóttir 1 athugasemd
Um mig: Ég heiti Sigríður Ýr, kölluð Sigga af öllum nema fjölskyldunni, ég er '89 módel og er með honum Óla mínum og í lok maí höfum við verið saman í 2 ár :) Við búum í lítilli kjallaraíbúð í húsi mömmu og pabba :)
Ég á 3 systur, elsta systirin er Áróra ('87) og hún er með Sigþóri en þau eiga dóttur sem fæddist í desember '07
Svo á ég tvær yngri systur sem heita Gerður Kolbrá ('96) og Hrafnkatla ('98).
Annað: Ég er í Verkmenntaskólanum á Akureyri á Listnámsbraut. Get ekki beðið eftir að klára skólann en hef ekki hugmynd um hvað ég geri eftir það.
Auglýsing
Innskráningar kubbur
Klukkan
Textareitur
Stand by me..
Nobody knows..
The way its gonna be..